Bergþór Bjarnason

Ég sá mömmu kyssa jólasvein…í sjálflýsandi nærbuxum
Jólin nálgast óðfluga. Því ekki að líta á undirfatatísku herranna sem gæti virkað sem gjafahugmynd fyrir einhverjar? Eða fyrir þann sem vantar skemmtilegan “jólasveinabúning” fyrir rómantískt aðfangadagskvöld!

Fyrir nokkrum árum mátti tala um byltingu í herraundirfataframleiðslu, framboðið margfaldaðist og innkaup herranna sömuleiðis. Þrátt fyrir erfiða tíma virðast þeir ekki vera tilbúnir til að skera niður nærfatakaupin sem eru orðin hluti af lífsstíl karla. Ekki eru þó allir í því sama og töluverður munur á innkaupum yngri og eldri herranna ef marka má kunnuga í þessum geira. Þeir ungu vilja flestir þröngar nærbuxur, mismunandi síðar, eða hinar svokölluðu “shortys” sem ná rétt niður fyrir rasskinnar. Þær eru líklega vinsælasta útgáfan hjá yngri en 35 ára. Þeir eldri velja heldur víðari útgáfur sem ekki þrengja um of um miðjuna. Klassísku nærbuxurnar, þessar með þykku teygjunni og klauf sem um tíma voru óskaplega vinsælar hjá Calvin Klein, seljast sífellt verr, ef frá eru taldar þær sem eru svo stuttar að sést í rasskinnarnar. En til að nota þær þarf vöxt sundkappa, sem ekki er öllum gefið. Nú þykir ekki nóg að eiga hvítar eða svartar nærbuxur og litirnir geta verið ótrúlegir; eiturgrænn, gulrauður eða fúksíubleikur og þær mynstruðu eru ekki aðeins með böngsum eða hjörtum því nú getur munstrið verið smáköflótt eða “vichy” sem er miklu flottara.

Ekki má heldur gleyma sérstökum jóla G-strengjum eða boxernærbuxum sem eru ætlaðar til að gefa jólunum lit, til dæmis með sjálflýsandi mittisteygju fyrir feluleik á jólanótt. Fyrir þá sem hafa áhuga heita þessar boxerbuxur Happy! Hvað annað.

Ég keypti mér fyrir nokkru túrkisbláa sundskýlu enda töluverð not fyrir slíka flík hér við Miðjarðarhafið þar sem fólk er enn að baða sig um hávetur í 16-19 gráðum. Ég datt því inn í sérverslun með herraundirföt og var það hin fróðlegasta heimsókn. Sjaldan eða aldrei á ævinni hef ég séð annað eins magn af alls konar nærbuxum, þær hlupu líklega á hundruðum. Litirnir óteljandi og ótrúleg efni í boði. Netefni, gegnsætt, leður, tugir g-strengja svo ekki sé minnst á bómull, lycra og fleira og fleira. Þessi búð sló öllum þeim nærfataverslunum við sem ég hef rekist á í París. Greinilegt að íbúar suðurhluta Frakklands eru ekki minna ögrandi þegar litið er á undirföt þeirra, eins og ytra byrðið gefur þegar til kynna.

Hlébarðamynstur að hætti Donatellu
Í ár fór saman koma Beaujolais nouveau rauðvínsins og tískulínu Versace hjá H&M í Frakklandi, tveir fastir liðir hér í nóvember. Á eftir Roberto Cavalli, Karl Lagerfeld, Lanvin og fleiri var komið að ítalska tískuhúsinu sem Donatella, systir stofnandans Gianni, stýrir nú. Sænski risinn veit upp á hár hvernig á að æsa almenning og kveikja upp þorsta með réttri markaðssetningu eins og tískusýningu í New York og auglýsingum á netinu og í sjónvarpi. Sömuleiðis er þetta sjálfsagt góð auglýsing fyrir Versace sem á næsta ári opnar heila búð á netinu. Stíllinn var sannarlega “ítalskur” eða ætti ég að segja í stíl við Frönsku Rivíeruna. Bæði kvenlínan með litríku hlébarðamunstri, svörtum kjólum með gylltu skrauti og semelíusteinum og herrafötin þar sem að mikið er um turkísblátt og jafnvel flúorbleik jakkaföt. Ekki má heldur gleyma frumskógarmynstrinu sem sumum sem ég hef heyrt í þykir nóg um. Punkturinn yfir i-ið voru auðvitað hlébarðapúðarnir sem breyta hvaða stofu sem er í exótískt draumaland að hætti Donatellu! Viðtökurnar voru góðar í þeim tuttugu búðum þar sem tískulínan var til sölu. Til dæmis hér í Nice þar sem varla var hægt að finna stærð medíum eða minna einum og hálfum tíma eftir opnun en merkilegt er þó að viðskiptavinirnir voru margir af afrískum uppruna. Í París var öllu meiri handagangur í öskjunni þar sem viðskiptavinir fengu armband sem veitti aðgang að Versace-svæðinu og tíminn til að versla var bundinn við fimmtán mínútur.

Ekki eru allir sáttir við þetta skipulagða hallæri þar sem mjög takmarkað upplag er til sölu. Karl Lagerfeld var ekki hrifinn þegar hann sá hönnun sína rifna út á tíu mínútum svo lá við áflogum árið sem hann var gestahönnuður. Reyndar kemur á markað í janúar á næsta ári ný kvenlína frá Lagerfeld sem einmitt verður á lágvöruverði en upplagið verður ekki eins takmarkað. Þetta er byrjunin því á eftir fylgir ný herralína. Skýringanna má leita til kreppunnar en fjöldi tískuhönnuða leggur nú nafn sitt við fjöldaframleiddan fatnað á hóflegu verði sem hefði í eina tíð ekki þótt sérstaklega fínt. Til dæmis hannar Vanessa Bruno fyrir pöntunarlistann La Redoute og Indverjinn Manish Arora tók nýlega við taumunum hjá Paco Rabanne fyrir Monoprix sem minnir dálítið á Hagkaup heima. Skófyrirtækið André selur tösku Charlotte Balme frá Yvonne-Yvonne sem er það nýjasta í París. Ódýrt fyrir allar konur og karla.

Tíska í takt við umhverfið
Á haustin fylgir hver tískukaupstefnan annarri í París. Ein sú yngsta í þessum flokki er stefnumót framleiðenda ogsmásala umhverfisvænnar tísku og fór þessi kaupstefna fram í áttunda sinn fyrr í haust. Þarna sýndu þeir sem til dæmis nota lífrænt ræktaða bómull, hör eða silki í fatnað sinn eða aðrar umhverfisvænar aðferðir við framleiðsluna (Ethical fashion). Yfir hundrað hönnuðir kynntu sig að þessu sinni. Í eina tíð voru það einungis þrjóskir sérvitringar sem voru að bögglast við að nota lífræn efni eða endurvinna en nú eru þessar aðferðir viðurkenndar í tískuheiminum og hver er með sína sérvisku. Til dæmis má nefna þá sem ekki nota dýraskinn heldur eingöngu leður úr plöntum. Aðrir  eru meira í endurvinnslu eða sauma nýjar flíkur úr gömlum sem minnkar umfang þess sem endar í sorpeyðingarstöðvum. Enn aðrir eru uppteknir af því að gæta hagsmuna fátækra bænda víða um veröld sem rækta lífræna bómull og önnur efni í sátt við umhverfið en hefðbundin bómullarframleiðsla er gríðarlega mengandi og ein vatnsfrekasta framleiðsla heims.

Þó að langt sé liðið frá því að umhverfisvæn tíska einkenndist einna helst af ponchó  úr ull frá Perú þá er enn langt í að þessi tíska verði ráðandi á markaðnum. Ólíkt því sem gerst hefur í snyrtivörum eða í lífrænt ræktuðum matvælum er þessi framleiðsla ekki vel þekkt hjá almenningi og til dæmis hér á landi hefur aðeins lítið brot landsmanna einhvern tíma keypt tískuflík hannaða eða framleidda í sátt við umhverfið. En þessari framleiðslu vex stöðugt fiskur um hrygg og sífellt fleiri hugsa um plánetuna jörð. Nú er til dæmis hægt að gifta sig í umhverfisvænum brúðarkjól eða ganga í sannkölluðum „haute couture“ flíkum sem eru algjörlega umhverfisvænar. Frá Kína koma ekki aðeins fjöldaframleiddar ódýrar og mengandi vörur heldur einnig tískuflíkur sem eingöngu eru úr endurunnum efnum og aðeins framleiddar í fáum eintökum hver. Til að gefa hugmynd um það sem er í boði í dag er fróðlegt að kíkja á síðuna www.ethicaltradeshop.com

Greenpeace gaf nýlega út lista yfir fataframleiðendur sem framleiddu fatnað sem eiturefni höfðu fundist í. Þetta voru fyrirtæki eins og Adidas, H&M og Lacoste en listinn er langur. Framleiðendurnir menga vatn þar sem framleiðslan fer fram (oftar en ekki í Kína). Öryggisreglum er ekki fylgt og starfsfólk því í hættu. Í hvert sinn sem við kaupum flík er spurningin því ekki síður umhverfisleg en siðferðileg.

Ullarpeysur, ökklaháir skór og pennar að hætti prinsa
Í vetur er herratískan karlmannleg. Herrunum ætti ekki að verða kalt, sem eru auðvitað góðar fréttir heima á Fróni. Þykkar peysur með köðlum eða með öðru grófu prjóni einkenna vetrartískuna. Heimaprjón gæti því verið sparnaðarleið í vetur. Peysurnar eru bæði einlitar eða marglitar, með munstruðum bekkjum yfir brjóstið eða almunstraðar og litirnir eru fjölbreyttir. Mikið er um grófar jakkapeysur, sumar með uppháum kraga og þá þarf ekki einu sinni trefil. Tölurnar eru einnig mikilvægar, þær geta verið úr tré eða horni, jafnvel útskornar. Við peysurnar eru oft notaðar þröngar bómullarbuxur eða gallabuxur með uppbroti. Þá er ekki verra að eiga köflótta sokka í Burberrys-stíl. Líka er hægt að nota leðurskó upp að ökkla og setja buxurnar ofan í.

Í vetur eru klassískir jakkar og jakkaföt meira áberandi en undanfarið, viturleg kaup í kreppunni. Þau eru í dökkum litum en blátt og brúnt er einnig í boði og einstaka framleiðandi býður upp á ljósa liti.

Þeim sem leita að ódýrum aðferðum til að breyta til í vetur má benda á köflóttar þverslaufur sem þykja fínar og mjó litrík bindi sem breyta öllu. Þeir sem eru í viðskiptum geta auðvitað ekki skrifað undir samning nema með Mont Blanc-penna sem geta kostað frá þrjú hundruð evrum upp í tvö hundruð og fimmtíu þúsund evrur eins og penni Alberts prins af Mónakó sem Mont Blanc lét gera fyrir brúðkaupið í sumar.

Svo er bara að vona að það verði nógu kalt til að nota allar fínu peysurnar sem líklega verður frekar ólíklegt fyrir mig hér suður frá. Ég veit reyndar hreinlega ekki hvað ég á að gera við allar þykku peysurnar mínar, hvort sem það eru íslenskar lopapeysur eða annars konar peysur sem ég kom með frá París á vordögum hingað á Frönsku Rivíeruna. Annaðhvort eru þetta gjafir og því alltof tilfinningalega tengdar við viðkomandi prjónakonu eða of fínar til að láta af hendi. Hér er hins vegar ekki hægt að tala um raunverulegan vetur nema þá ef farið er á skíði í Ölpunum sem eru í eins og hálfs tíma fjarlægð. Og þá þarf að læra að skíða!

Upprisa og annað líf
Tískuviku í París lauk fyrir tveimur vikum og enn var margt um áhugaverða hönnuði í lokin. Til dæmis má nefna Alexander McQueen eða réttara sagt hönnun Söru Burton sem tók við listrænni stjórn eftir dauða McQueens á síðasta ári. Sara Burton hefur náð góðum tökum hönnun sinni, fetar slóð McQueens en setur um leið sitt eigið mark á stílinn. Ekki spillir heldur fyrir að hún skyldi valin til að hanna brúðarkjól Kate Middleton fyrir brúðkaup hennar og Vilhjálms prins í sumar og því er áhugi tískupressunnar enn meiri fyrir vikið. Hællausu háu skórnir eru líklegir til að verða á síðum tískutímaritanna á næstunni þó ég efist um að þeir séu sérsaklega þægilegir. Andlit fyrirsætnanna voru hulin með blúndum, þær voru einnig með bleikt kögur á flíkunum. Svo mátti sjá fölgráa kjóla með olíuslettum komnar á efnið líkt og fyrir mistök.

Stella McCartney virðist áskrifandi að lofi í tískuheiminum og hefur með tímanum skapað sitt eigið nafn þó sjálfsagt hafi hún nú aldrei þurft að lepja dauðann úr skel í æsku. Hún hefur fjarlægst víðar mussur og formlausar flíkur, nú er tískan kynþokkafull og ögrandi. ”Summer of love” var yfirskriftin og leiðir hugann að Kaliforníu og poppstjörnum. Á sýningarpöllunum mátti sjá mjög stutta kjóla, samfestinga sem eru í miklu uppáhaldi hjá Stellu sem segir þessa flík hæfa öllum líkamsgerðum. Einnig sáust jakkaföt með vesti í karlmannlegum stíl. Efnin innihalda fjörleg munstur og mikið er um kóngabláan lit.

Í tískunni er ekkert endanlegt og menn og tískuhús koma og fara. En svo er einnig hægt að lífa öðru lífi sem passar vel inn í þá áráttu í dag að endurgera það sem áður hefur verið hannað í tískunni. Nú eru liðin fimm ár frá því að Paco Rabanne hætti. Tískuhúsið sem er í höndum katalónsku grúppunnar Puig hefur haldið áfram að selja ilmvötn Rabannes, meðal annars mest selda herrailmvatnið á markaðnum, One Million. En á síðasta ári var reynt að nýju við tískuna með frægri málmtösku Rabannes, ”69″. Indverjinn Manish Arora mundar nú blýantinn, en hann hefur vakið athygli fyrir Bollywood-tísku sína síðustu ár. Ekki dugði minna en Pompidou-safnið fyrir endurkomuna þó ekki væri nú fullt út úr dyrum en Arora þykir hafa tekist nokkuð vel upp með málmkjóla Rabanne sem er líklega ekki svo langt frá glingri Bollywood eftir allt saman.

Engar fréttir af Marc Jacobs og Dior en nú segja sögur að það sé vegna þess að samningarnir hafi dregist á  langinn.