Paris is burning, Paris is burning
October 25, 2010, 5:04 pm
Filed under: Politics | Tags: eftirlaunafrumvarp Sarkozys, erlendar fréttir, EVA JOLY, Frakkland hálf lamað, ríkisstjórn Frakklands í vondum málum, verkföll í Frakklandi
Filed under: Politics | Tags: eftirlaunafrumvarp Sarkozys, erlendar fréttir, EVA JOLY, Frakkland hálf lamað, ríkisstjórn Frakklands í vondum málum, verkföll í Frakklandi
Ég hef lengi ætlað mér að skrifa nokkrar línur um ástandið í Frakklandi til þess að gefa aðeins réttari mynd af ástandinu hér og kannski aðeins dýpri en oft má sjá í fréttum. Svo verður að segjast eins og er að fyrir löngu hefur mér blöskrað bullið sem Óli Tynes skrifar á Vísir.is, reyndar eins og víðar, sjálfsagt oft þýtt úr fréttaskeytum á ensku enda fáir miðlar heima sem hafa efni á raunverulegri alþjóðlegri blaðamennsku. Tvö dæmi sem ég hef rekist á og tengjast bæði Evu Joly og frambjóðendum til forsetakosninganna í Frakklandi. Fyrir nokkru skrifar hann að Eva Joly sé frambjóðandi til forseta hér í landi en það er aðeins að verða verulega líklegt núna að hún verði frambjóðandi, í bili er hún aðeins frambjóðandi í forkosningum hjá Græningjum sem er líklegt að hún vinni, ekki síst þar sem að flokksformaðurinn, Cécile Duflot, ætlar ekki að sækjast eftir að verða frambjóðandi. Á dögum má svo lesa að Eva eigi eftir að berjast við Brigitte Bardot en hún mun hafa sagt að smáflokkur Sjálfstæðra Græningja hafi nefnt það við hana að vera í framboði en einn foringi þessa flokks neitar því alfarið. Bardot er því alls ekki í forsetaframboði!
Meira að segja Rúv skrifar all frjálslega upp úr fréttaskeytum og ég las á dögunum um mikil mótmæli á götum úti, einmitt einn daginn þegar næsta lítil mótmæli voru í gangi. Eitt kvöldið var frétt á Ruv.is um að ESB hafi ákveðið að lengja fæðingarorlof en þetta er aðeins tillaga samþykkt á Evrópuþinginu og nær ekki fram nema að tuttugu og sjö ríkisstjórnin ESB-landananna samþykki sem er ólíklegt að verði þar sem nokkur lönd hafa þegar sagst vera á móti. En þetta var nú útidúr.
Það er vissulega mikil órói hér í landi og víða verkföll og ýmsar truflanir á daglegu lífi fólks á ákveðnum stöðum. En það má byrja á því að segja frá því að Parísarbúar hafa ekki mikið fundið fyrir verkföllum undanfarið því metró-lestakerfið hefur virkað vel því minna hefur verið um verkföll hjá RATP-fyrirtækinu sem sér um þær sem og strætisvagna borgarinnar og í nágrannaborgum sem hafa gengið nokkuð vel. Öllu erfiðara hefur verið að komast frá útborgum Parísar inn í borgina. það er rétt að víða í stærri borgum og úthverfum er orðið erfitt að finna eldsneyti, sérstaklega díselolíu, en það sem hvergi kemur fram er að deilan í olíuhreinsunarstöðvunum fór af stað vegna einkavæðingar en ekki vegna frumvarpsins um eftirlaunaaldur. Einnig má nefna að höfnin í Marseille hefur nú verið lokuð vikum saman af sömu ástæðum, nefnilega einkavæðing. Mótmælin renna því orðið saman og eru komin til vegna mismundandi ástæðna. Ástandið er því alvarlegra og reiðin víðtækara og ekki bundin eingöngu við eftirlaunafrumvarpið.
Óvænt komu svo menntaskólarnemar inn í mótmælin fyrir tíu dögum og svo háskólastúdentar þó þeir séu ekki margir. Menntaskólanemunum fylgja svo skemmdarvargar sem ekkert hafa með menntaskóla að gera og mæta aðeins til að skemma, kveikja í bílum og brjóta rúður.
Það er mikil einföldun að segja að í Frakkland eingöngu að berjast gegn því að eftirlaunaaldurinn verði 62 ár í stað 60. Svo einfalt er málið ekki. Almennt þá færist eftirlaunaaldur til 62 ára, nema fyrir þá sem ekki hafa greitt nógu lengi. Sá sem ekki á rétt á fullum eftirlaunum þarf í dag að vinna til 65 ára aldurs en það verður 67 ára með nýja frumvarpinu. Oft eru það konur sem hafa hætt um tíma að vinna vegna barneigna sem eiga rétt á fullum eftirlaunum eða hafa verið í hlutastarfi og munu þurfa að vinna til 67 ára aldurs.
Nú þegar frumvarpið er farið í gegnum Öldungardeild þingsins og fer í sameiginlega nefnd þingdeildanna og svo væntalega í endanlega afgreiðslu í báðum deildum er ólíklegt að það verði stoppað. Samt sem áður boða verkalýðsfélög enn til verkfalla og mótmæla á fimmtudag og svo aftur 6. Nóvember. Einnig ætla stúdentar að mótmæla á morgun. Það skýrist svo í vikunni hvort hlutirnir séu að róast. Til dæmis eru olíuhreinsunarstöðvar að opna að nýju. Ekki má heldur gleyma að frí hófst í skólum um helgina.
Leave a Comment