Bergþór Bjarnason


Ég sá mömmu kyssa jólasvein…í sjálflýsandi nærbuxum

 Jólin nálgast óðfluga. Því ekki að líta á undirfatatísku herranna sem gæti virkað sem gjafahugmynd fyrir einhverjar? Eða fyrir þann sem vantar skemmtilegan “jólasveinabúning” fyrir rómantískt aðfangadagskvöld!

Fyrir nokkrum árum mátti tala um byltingu í herraundirfataframleiðslu, framboðið margfaldaðist og innkaup herranna sömuleiðis. Þrátt fyrir erfiða tíma virðast þeir ekki vera tilbúnir til að skera niður nærfatakaupin sem eru orðin hluti af lífsstíl karla. Ekki eru þó allir í því sama og töluverður munur á innkaupum yngri og eldri herranna ef marka má kunnuga í þessum geira. Þeir ungu vilja flestir þröngar nærbuxur, mismunandi síðar, eða hinar svokölluðu “shortys” sem ná rétt niður fyrir rasskinnar. Þær eru líklega vinsælasta útgáfan hjá yngri en 35 ára. Þeir eldri velja heldur víðari útgáfur sem ekki þrengja um of um miðjuna. Klassísku nærbuxurnar, þessar með þykku teygjunni og klauf sem um tíma voru óskaplega vinsælar hjá Calvin Klein, seljast sífellt verr, ef frá eru taldar þær sem eru svo stuttar að sést í rasskinnarnar. En til að nota þær þarf vöxt sundkappa, sem ekki er öllum gefið. Nú þykir ekki nóg að eiga hvítar eða svartar nærbuxur og litirnir geta verið ótrúlegir; eiturgrænn, gulrauður eða fúksíubleikur og þær mynstruðu eru ekki aðeins með böngsum eða hjörtum því nú getur munstrið verið smáköflótt eða “vichy” sem er miklu flottara.

Ekki má heldur gleyma sérstökum jóla G-strengjum eða boxernærbuxum sem eru ætlaðar til að gefa jólunum lit, til dæmis með sjálflýsandi mittisteygju fyrir feluleik á jólanótt. Fyrir þá sem hafa áhuga heita þessar boxerbuxur Happy! Hvað annað.

Ég keypti mér fyrir nokkru túrkisbláa sundskýlu enda töluverð not fyrir slíka flík hér við Miðjarðarhafið þar sem fólk er enn að baða sig um hávetur í 16-19 gráðum. Ég datt því inn í sérverslun með herraundirföt og var það hin fróðlegasta heimsókn. Sjaldan eða aldrei á ævinni hef ég séð annað eins magn af alls konar nærbuxum, þær hlupu líklega á hundruðum. Litirnir óteljandi og ótrúleg efni í boði. Netefni, gegnsætt, leður, tugir g-strengja svo ekki sé minnst á bómull, lycra og fleira og fleira. Þessi búð sló öllum þeim nærfataverslunum við sem ég hef rekist á í París. Greinilegt að íbúar suðurhluta Frakklands eru ekki minna ögrandi þegar litið er á undirföt þeirra, eins og ytra byrðið gefur þegar til kynna.



Hlébarðamynstur að hætti Donatellu

 Í ár fór saman koma Beaujolais nouveau rauðvínsins og tískulínu Versace hjá H&M í Frakklandi, tveir fastir liðir hér í nóvember. Á eftir Roberto Cavalli, Karl Lagerfeld, Lanvin og fleiri var komið að ítalska tískuhúsinu sem Donatella, systir stofnandans Gianni, stýrir nú. Sænski risinn veit upp á hár hvernig á að æsa almenning og kveikja upp þorsta með réttri markaðssetningu eins og tískusýningu í New York og auglýsingum á netinu og í sjónvarpi. Sömuleiðis er þetta sjálfsagt góð auglýsing fyrir Versace sem á næsta ári opnar heila búð á netinu. Stíllinn var sannarlega “ítalskur” eða ætti ég að segja í stíl við Frönsku Rivíeruna. Bæði kvenlínan með litríku hlébarðamunstri, svörtum kjólum með gylltu skrauti og semelíusteinum og herrafötin þar sem að mikið er um turkísblátt og jafnvel flúorbleik jakkaföt. Ekki má heldur gleyma frumskógarmynstrinu sem sumum sem ég hef heyrt í þykir nóg um. Punkturinn yfir i-ið voru auðvitað hlébarðapúðarnir sem breyta hvaða stofu sem er í exótískt draumaland að hætti Donatellu! Viðtökurnar voru góðar í þeim tuttugu búðum þar sem tískulínan var til sölu. Til dæmis hér í Nice þar sem varla var hægt að finna stærð medíum eða minna einum og hálfum tíma eftir opnun en merkilegt er þó að viðskiptavinirnir voru margir af afrískum uppruna. Í París var öllu meiri handagangur í öskjunni þar sem viðskiptavinir fengu armband sem veitti aðgang að Versace-svæðinu og tíminn til að versla var bundinn við fimmtán mínútur.

Ekki eru allir sáttir við þetta skipulagða hallæri þar sem mjög takmarkað upplag er til sölu. Karl Lagerfeld var ekki hrifinn þegar hann sá hönnun sína rifna út á tíu mínútum svo lá við áflogum árið sem hann var gestahönnuður. Reyndar kemur á markað í janúar á næsta ári ný kvenlína frá Lagerfeld sem einmitt verður á lágvöruverði en upplagið verður ekki eins takmarkað. Þetta er byrjunin því á eftir fylgir ný herralína. Skýringanna má leita til kreppunnar en fjöldi tískuhönnuða leggur nú nafn sitt við fjöldaframleiddan fatnað á hóflegu verði sem hefði í eina tíð ekki þótt sérstaklega fínt. Til dæmis hannar Vanessa Bruno fyrir pöntunarlistann La Redoute og Indverjinn Manish Arora tók nýlega við taumunum hjá Paco Rabanne fyrir Monoprix sem minnir dálítið á Hagkaup heima. Skófyrirtækið André selur tösku Charlotte Balme frá Yvonne-Yvonne sem er það nýjasta í París. Ódýrt fyrir allar konur og karla.




Follow

Get every new post delivered to your Inbox.

Join 27 other followers